Stígðu út fyrir hina hefðbundnu kennslustofu og upp til himins! Flyover býður nemendum spennandi leið til að sjá og upplifa okkar stórkostlega land sem og fjarlægari slóðir. Fljúgandi kennslustofan okkar vekur upp forvitni, dýpkar skilning og breytir venjulegri vettvangsferð í ógleymanlega ævintýraför.
Fræðsla í boði
Flyover býður upp á fleiri en eina fræðandi sýningu hverju sinni en sýningarnar tæpa allar á mismunandi hlutum samfélagsfræði. Við skyggnumst inn í landafræði, sögu, hagfræði og menningarlæsi. Eftirfarandi sýningar eru hluti af Flyover upplifuninni:
Smellið á “Sýningar” í valmyndinni efst á síðunni til að sjá hvaða sýning er í boði fyrir skólahópinn þinn hverju sinni!
Til að njóta kjara sem ætlaðir eru skólahópum þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Fyrir hver 9 börn í skólahópum fær 1 fylgdarmanneskja frían aðgang að sýningu Flyover. Hver auka fullorðinn gestur umfram það greiðir sama verð og nemandi.
Til fylgdarfólks telst hver sá fullorðni einstaklingur sem fylgir hópnum s.s. kennari, foreldri, sjálfboðaliði eða starfsmaður skóla.
Vinsamlegast fyllið út bókunarformið hér að neðan. Starfsmaður okkar mun hafa samband og staðfesta bókunina.
Hópar eru bókaðir á heila og hálfa tímanum. Til að upplifun hópa sé sem ánægjulegust er nauðsynlegt að mæta að minnsta kosti 15 mínútum fyrir áætlaðan flugtíma. Þá hafið þið tíma til að láta vita af ykkur, ná í miða fyrir hópinn og ganga frá hlutum í geymslu ef þörf er á.
Skólar í reikningsviðskiptum fá sendan reikning eftir heimsóknina. Fyrirframgreiðslu er óskað sé skóli ekki í reikningsviðskiptum við Flyover.
Breytingar eða afbókun má gera með allt að þriggja daga fyrirvara án þess að til greiðslu komi.
Ekki eru kröfur um lágmarksfjölda gesta.
Gestir þurfa að hafa náð 100 cm hæð.
Reglum um fylgdarfólk er stranglega fylgt. Engar undantekningar eru gerðar.
Ef þið missið af tímanum sem var bókaður þarf að bóka nýjan tíma með tilliti til bókunarstöðu.