Ómótstæðilegt amerískt ævintýri

Aðeins Í Takmarkaðan Tíma: 29. Febrúar – 28. Apríl

Svífðu yfir ameríska vestrið í stórfenglegu sýndarflugi. Undur vestursins býður áhorfendum upp á víðáttur engjanna, gnæfandi fjallstoppa og merk mannvirki böðuð borgarljósum. Hoppaðu um borð og kannaðu nokkur merkustu svæði Bandaríkjanna, þar á meðal Tahoe-vatn, Zion-þjóðgarðinn, aðalgötu Las Vegas og Miklagljúfur – allt án þess að yfirgefa Reykjavík.

Ekki missa af tækifærinu til að upplifa Undur vestursins hjá FlyOver Iceland, einungis í takmarkaðan tíma.

Bóka núna

Komdu í ævintýraför

Undur vestursins hefjast á kynningu sem undirbýr gesti fyrir háloftaævintýrið. Áður en þeir fá sér sæti kynnast þeir fólkinu, stöðunum og andanum sem svífur yfir vötnum þessa kynngimagnaða svæðis. Þeir kynnast menningunni og sögunni og geta þannig notið ævintýrafararinnar enn betur.

Eitthvað fyrir alla

Gott að vita

Börn verða að vera orðin 100 cm há til að mega fara í flug

Börn á aldrinum 12 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum eða umsjónaraðila sem er 14 ára eða eldri.

back to top