Flyover býður upp á einstakt ævintýri, hvort sem þú ert að skipuleggja fámenna afmælisveislu eða risa viðburð með yfirtöku á öllu húsinu. Flyover hentar fólki á öllum aldri og fyrir hvers konar samkomur. Við tökum hlýlega á móti skólahópum, almannaheillafélögum, fyrirtækjahópum, vinahópum – alls konar hópum – og sjáum til þess að okkar frábæra sýndarflug þjappi hópnum vel saman og skilji eftir ógleymanlega minningu.
Stórt eða smátt, látlaust eða með glæsibrag – ævintýri hópsins byrjar hér.
Takið á loft. Upplifið undrið. Lendið uppfull af innblæstri.
Stór hópur kallar á stórt ævintýri. Hópurinn flýgur yfir stórbrotið landslag og upplifir ógleymanleg augnablik. Fullkomið fyrir hvers konar veislur, endurfundi eða bara þegar gengið þitt er í stuði til að fljúga hærra.
Fagnaðu með pompi og pragt! Afmælisveislur hjá Flyover eru allt í senn spennandi, óvenjulegar og fullkomlega ógleymanlegar.
Lærðu á flugi! Börn og unglingar fá algerlega nýja sýn á samfélagsfræðikennsluna þar sem þau fljúga yfir landslag, menningarhópa og náttúruundur.
Hjá Flyover bjóðum við hópa sem þjóna samfélaginu okkar á einn eða annan hátt sérlega velkomna. Hér fara góð málefni svo sannarlega á flug.
Fylltu út eyðublaðið hér fyrir neðan til að fá samband við sölufulltrúa okkar.