On Saturday, August 22nd, our Grandi Shuttle will not be operating due to road closures related to the Reykjavík Marathon.
FlyOver Iceland will be open as usual, but driving in downtown Reykjavík will be limited, and the road to FlyOver Iceland will be closed on August 22nd from 8:00 AM until 1:00 PM.
You can find all information HERE.
Flugsýningin okkar hentar öllum aldurshópum. Við leggjum áherslu á gott aðgengi og ungir í aldri og anda geta svifið yfir landið hjá okkur. Héðan fara allir brosandi og stoltir yfir fallega landinu okkar.
Þú þekkir landið þitt vel og hefur jafnvel ferðast mikið um það á eigin vegum. En þú hefur aldrei séð Ísland á þennan hátt. Í sýningunni okkar situr þú með lappirnar dinglandi yfir 300 fermetra sveigðum skjá. Myndin okkar fer svo með þig í æsispennandi ferðalag um Ísland. Tæknibrellur, þar á meðal vindur, þoka og lykt, ásamt hreyfingum búnaðarins gera þess upplifun ógleymanlega.
Ísland er kraftmikill staður. Áður en við fljúgum með þig yfir landið sérð þú tvær margmiðlunarsýningar sem segja frá menningu og hugarfari Íslendinga.
LANGHÚSIÐ
SAGAN GLÆDD LÍFI
Stígðu inn í forníslenskt langhús víkinganna þar sem átakasögu landsins eru gerð skil. Hér mun gráhærður sögumaður flytja sögur sem birtast svo ljóslifandi í skuggamyndum.


LÍFSINS BRUNNUR
UPPLIFÐU SKÖPUN EYJUNNAR
Ísland er kraftmikill staður! Kynntu þér ævaforn náttúruöflin sem landnámsmenn Íslands upplifðu í glæsilegri og áhrifamikilli kynningu með tónlist, hreyfimyndum, myndskeiðum og mjög vitru trölli.